Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði

31. maí 2010 | Fréttir

Við þökkum fyrir traustið

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði vill þakka öllum þeim sem lögðu flokknum lið í kosningabaráttunni og á kjörtímabilinu öllu.

Kæru Hafnfirðingar, við þökkum fyrir traustið og saman munum við gera góðan bæ enn betri!

31. maí 2010 | Fréttir

Minnum á kosningakaffi og kosningavöku laugardaginn 29. maí

Kosningakaffi á kjördag milli kl. 10-18 á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins að Norðurbakka 1a.

Fögnum svo góðum árangri og fjölmennum á kosningavöku flokksins. Húsið opnar að Norðurbakka 1a kl. 21.30.

Allir velkomnir!

28. maí 2010 | Fréttir

Kosningaumfjöllun Stöðvar 2

Hérna er áhugaverð kosningaumfjöllun Stöðvar 2 um Hafnarfjörð - endilega kíkið á.

27. maí 2010 | Fréttir

Svona komum við okkur út úr vandanum

Flestum er ljóst að skuldir og fjárhagsstaða bæjarins er orðin mjög slæm. Það má ekki draga það að taka á vandanum svo bæjarfélagið fái haldið fjárhagslegu sjálfstæði sínu. Sjálfstæðisflokkurinn vill og þorir að takast á vandanum og er eini flokkurinn sem hefur lagt fram ítarlegar tillögur og aðgerðaáætlun í 18 liðum til að taka á vandanum og mun setja þær í framkvæmd um leið og flokkurinn kemst í aðstöðu til þess.

 

27. maí 2010 | Fréttir

Hamar komin út

Ný og skemmtileg útgáfa af Hamri kom út í dag og var dreift í öll hús í Hafnarfirði. 

Vefræn útgáfa af Hamri.

26. maí 2010 | Fréttir

XD á laugardaginn - nú er breytinga þörf

Sjáðu myndbandið hennar Sigurlaugar Önnu Jóhannsdóttur hér

26. maí 2010 | Fréttir

Sameiginlegur framboðsfundur í Hafnarborg

Stjórnmálaflokkarnir verða með sameiginlegan framboðsfund í Hafnarborg næstkomandi fimmtudagskvöld.  Fundarstjórar verða Svavar Halldórsson fréttamaður og Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður.

Fundinum verður sjónvarpað beint á vefveitu Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is og útvarpað á FM 97,2.  Hægt verður að nálgast upptökur á fundinum á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.

Við hvetjum fólk til að fjölmenna, allir velkomnir.